top of page

Ljóð, hrekkir og glæpir í Sunnlenska bókakaffinu fimmtudagskvöld

Glæpadrottningin Yrsa mætir í Bókakaffið á fimmtudagskvöld og þá verða þar líka ljóðskáld, hrekkjalómur af Alþingi, lífs- og sálarspekúlantinn Gunnlaugur og sagnaskáldið Bragi Ólafsson. Að vanda er húsið opnað klukkan átta og upplestur sem tekur rétta klukkustund hefst klukkan hálfníu. Á eftir gefst tækifæri til skrafs og áritana á bækur höfunda sem seldar eru á tilboðsverði. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Höfundarnir sem mæta eru eftirtaldir: Ásmundur Friðriksson: Hrekkjalómafélagið. Bragi Ólafsson: Sögumaður. Einar Ólafsson: Í heiminum heima. Einar Svansson: Elddropar. Gunnlaugur B. Ólafsson: Lífið í blóma. Heiðrún & Hrafnhildur: Ég erfði dimman skóg. Óskar Árni Óskarsson: Fjörtíu ný og gömul ráð & Blýengillinn. Yrsa Sigurðardóttir: Sogið.


Merkimiðar
No tags yet.
bottom of page