top of page

Bókakvöld á Bókakaffi

Guðbergur Bergsson og Guðrún Eva Mínervudóttir eru meðal þeirra sem fram koma í Bókakaffinu á Selfossi nú síðasta fimmtudagskvöldið fyrir jól. Fólk er hvatt til að mæta um átta og tryggja sér sæti en lestur hefst um hálf níu. Kakókannan gengur á milli og eftir að lestri er lokið blanda rithöfundar geði við gesti og árita bækur. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Lesarar 18. desember eru eftirtaldir:Bjarni Bernharður Bjarnason: TímasprengjaBjörn Rúriksson: Yfir ÍslandiGuðbergur Bergsson: Þrír sneru afturGuðni Ágústsson: HallgerðurGuðrún Eva Mínervudóttir: EnglarykJón Pálsson: Dýrmundur og málið með veginnKristian Guttesen: Í landi hinna ófleygu fuglaMagnús Halldórsson: Á blautum skómValgarður Egilsson: Steinaldarveislan

Merkimiðar
No tags yet.
bottom of page