top of page

Bænabókin alltaf á náttborðinu


Ásdís Pálsdóttir er mikill lestrarhestur og hefur verið alla tíð. Ásdís er ættuð af Suðurlandi þó hún hafi alist upp í Austur- Húnavatnssýslu, en móðir hennar, Sigríður Guðnadóttir ólst upp að Hvammi í Holti. Ásdís er fastagestur á Bókasafninu á Selfossi og þegar hún er sótt heim er alltaf ný bók komin á náttborðið.

Hvaða bók ertu að lesa núna?

„Ég er að lesa Náðarstund eftir Hönnuh Kent, en hana fékk ég í jólagjöf. Ég lánaði hana reyndar dóttur minni og var að fá hana aftur í hendur núna.“

„Ég er svo alltaf með bænabókina á náttborðinu en í henni les ég alltaf reglulega. Síðan er ég með bókina Lifðu í gleði og fallega bók sem heitir Skyndibitar fyrir sálina sem ég les líka alltaf í reglulega.“

Hvað er besta bókin sem þú last á síðastliðnu ári?

„Það er ábyggilega bókin Svanga Manga með svarta vanga eftir Ómar Ragnarsson. Hann er virkilega skemmtilegur penni og lýsir henni á mjög lifandi hátt. Það er alveg ótrúlegt hvernig hún hefur lifað af og náð að bjarga sér.“

Bókabæirnir austanfjalls þakka Ásdísi fyrir spjallið.

Merkimiðar
No tags yet.
bottom of page