top of page

Bókamarkaður Bókabæjanna austanfjalls á Selfossi í ár


Föstudaginn 8. júlí, verður opnaður bókamarkaður í Leikhúsinu við Sigtún með

nýjum og notuðum bókum. Allar bækur verða þar á sama verði, 500 kr./stk. Fullt hús bóka og mörg hundruð titlar í boði.

Bókakaffið og Bókabæirnir austanfjalls standa að markaðinum.

Hér verður úrval bókmenntaverka, ævisagna, þjóðsagna, fræðirita og bóka um aðskiljanlegustu málefni. Í notuðu bókunum er yfirleitt ekki nema eitt eintak af hverjum titli og þá gildir hið fornkveðna að fyrstir koma, fyrstir fá. Fjölmörg bókaforlög, bæði stór og smá, leggja markaðinum lið með afsláttarsendingum af lagerum og allir ættu því að finna hér eitthvað við sitt hæfi.

Bókamarkaðurinn verður fyrst um sinn opinn frá 12-18 frá föstudegi til sunnudags.

Merkimiðar
No tags yet.
bottom of page