top of page

Sýningin „Þetta vilja börnin sjá“ á Bókasafninu í Hveragerði

Þessa dagana er verið að setja upp sýninguna „Þetta vilja börnin sjá“ á Bókasafninu í Hveragerði. Sýningin opnar á föstudagsmorgun og hefur 4. bekk Grunnskólans í Hveragerði verið boðið að opna sýninguna.

„Þetta vilja börnin sjá“ er sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum sem komu út á árinu 2014. Á sýningunni kemur vel fram sú fjölbreytni sem er í íslenskri barnabókaútgáfu. Sýningin er farandsýning og hefur hangið uppi í Gerðubergi síðustu vikur, en fer nú á flakk um landið. Þetta er glæsileg sýning, stór og yfirgripsmikil, og hvetjum við alla til að koma og skoða hana þennan mánuð sem hún verður hjá okkur. Skóla- og leikskólanemendur eru sérstaklega velkomnir.

Eftirtaldir 27 myndskreytar eiga myndir á sýningunni: Anna Cynthia Leplar, Áslaug Jónsdóttir, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Birgitta Sif, Björk Bjarkadóttir, Bojan Radovanovic, Chris Aryanto, Denisa Negrea, Elsa Nielsen, Erla María Árnadóttir, Eva Þengilsdóttir, Eva Sólveig Þrastardóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Högni Sigurþórsson, Kamil Jactek, Konráð Sigurðsson, Lára Garðarsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Lína Rut, Michael D. Perez, Ósk Laufdal, Rán Flygenring, Rio Burton, Sigrún Eldjárn, Vladimiro Rikowski, Þorbjörg Helga Ólafsdóttir, Þórir Karl Celin.

Sýningin er opin um leið og safnið, mánudaga kl. 11-18.30, þriðjud.-föstud. Kl. 13-18:30 og laugardaga kl. 11-14. Athugið að safnið er opið laugardaginn fyrir páska.

Merkimiðar
No tags yet.
bottom of page